Martynas & Egle staðfest!

Fimmtudagur, Janúar 19th, 2012 | Fr | Engar athugasemdir

Martynas & Egle

Martynas & Egle

Vor önn Lindy Ravers

Fimmtudagur, Janúar 19th, 2012 | Fr | Engar athugasemdir

Tímarnir verða kenndir í Hinu Húsinu Pósthússtræti á þriðjudögum frá kl 19:00 til 20:30.

Þessa önnina ætlar Lindy Ravers að bregða út af vananum og hafa rútínu tíma á þriðjudögum. Kenndar verða nokkrar vinsælar rútínur af ýmsum kennurum.

Kenndar verða 3 mismunandi rútínur og ein eða tvær auka útgáfur af Shim sham. Allar rútínurnar eru solo dans rútínur og því skipta hlutföll á milli lead/follow ekki máli :o)

Allar rútínurnar henta bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Greiðslufyrirkomulag mun verða þannig að hægt er að borga 3500.- fyrir alla tímana sem verða 13. eða 15. eða borga 1000.- fyrir hverja rútínu. Þeir sem nú þegar hafa greitt ársgjald LR þurfa ekki að greiða fyrir þessa tíma.

Bankaupplýsingar:
513 - 14 - 607990 kt: 4805081220

**Dagskrá**

31. janúar – Shim Sham
7. febrúar – Shim Sham
14. febrúar – Shim Sham

21. febrúar – Shim Sham Dean Martin Styling
27. febrúar – Shim Sham Dean Martin Styling

6. mars – Big Apple
13. mars – Big Apple
20. mars – Big Apple
27. mars – Big Apple Rútínan sett saman og æfð í hring

3. apríl – Dymbilvika – Páskafrí

10. apríl – Carribean Shim Sham * Óstaðfest*
17. apríl - Carribean Shim Sham *Óstaðfest*

24. apríl - Prófafrí
1. maí - Prófafrí

8. maí – Tranky Doo
15. maí – Tranky Doo
22. maí – Tranky Doo
22. maí – Tranky Doo

*** Allt birt með fyrirvara um breytingar ***

Lítill fugl hefur hvíslað því að okkur að ….

Mánudagur, Janúar 16th, 2012 | Fr | Engar athugasemdir

… þessir frábæru dansarar sé á leiðinni á klakann í vor!

social dans

Laugardagur, Október 1st, 2011 | Fr | Engar athugasemdir

*DANSKVÖLDIÐ VERÐUR FRÁ KL 20:00 - 22:00* (update 2 okt, kl 14:00)

Danskvöldið næsta sunnudagskvöld (2. okt) verður haldið frá kl 19:30 - 21:00, vegna óviðráðanlegra orsaka.

Hlökkum til að sjá ykkur :o)

Lindy Hop Byrjenda Námskeið

Fimmtudagur, Ágúst 25th, 2011 | Fr | Engar athugasemdir

10 vikna byrjendanámskeið byrjar 20. september. Námskeiðið er á þriðjudögum frá kl 19:00-20:30.

Kennarar verða Þórgnýr og Vala / Ágúst Skorri og Dóra.

Námskeiðið er haldið í Hinu Húsinu sem er til húsa á Pósthússtræti 3-5. Gengið er inn um dyr á vesturhlið hússins, gengið er upp á 3. hæð,

Námskeiðið kostar 4000 fyrir þá sem borga fyrirfram en 4500 ef greitt er á staðnum.
Bankaupplýsingar: 513 - 14 - 607990 kt: 4805081220

Lindy Ravers á FB
Event fyrir námskeiðið á
FB

Hvað er Lindy Hop !!

Allar frekari upplýsingar fást hjá lindyravers@gmail.com eða hjá Lindy Ravers á Facebook

Byrjenda helgarnámskeið í Lindy Hop

Þriðjudagur, Júlí 12th, 2011 | Fr | Engar athugasemdir

Í tilefni þess að vikuna 8-14. ágúst fer fram alþjóðleg Lindy Hop hátíð á íslandi, The Arctic Lindy Exchange, ætlar Lindy Ravers að bjóða upp á helgarnámskeið fyrir byrjendur.

Farið verður yfir helstu grunnatriði í Lindy Hop og er stefnt að því að þátttakendur verði nægilega ballfærir fyrir hátíðina.

Dagskrá:
Laugardagur:
11-12:15 - Kennsla
12:15-13:15: Hlé og opinn æfingatími
13:15-14:30: -Kennsla

Sunnudagur:
11-12:15: - Kennsla
12:15-13:15: Hlé og opinn æfingatími
13:15-14:30: - Kennsla

Sunnudagskvöld:
Upprifjun á efni helgarinnar. Farið yfir helstu atriði sem tengjast mannasiðum á danskvöldum og hefðum sem tengjast dansinum. Á eftir verður svo farið á danskvöld.

Samtals 5klst af kennslu ásamt opnum æfingatímum.

Verð: 4000kr fyrir helgina ef greitt er fyrir 4. ágúst, 4500kr ef greitt er á staðnum.

Staðsetnig: Hitt Húsið Pósthússtræti 3-5
Skráning fer fram í lindyravers@gmail.com
Bankaupplýsingar: 513 - 14 - 607990 kt: 4805081220

Facebook event

Lindyravers kynnir 2 vikna (5klst) Blues dansnámskeið með Eika.

Mánudagur, Júlí 11th, 2011 | Fr | Engar athugasemdir

Dagskrá:
Miðvikudagur 27. júlí
19:00-20:15 = Ballroomin’ basics
20:30-21:45 = Balltoomin’ moves

Miðvikudagur 3. ágúst
19:00-20:15 = Jukin’ basics
20:30-21:45 = Jukin’ moves

Nánar um Blues dans
http://en.wikipedia.org/wi​ki/Blues_dance

Myndband af Blues dans keppni
http://www.youtube.com/wat​ch?v=otLJk_KIyCs

Verðskrá
4.500- (3.500- ef borgað er fyrir 24. Júlí)

Námskeiðið fer fram í Hinu Húsinu á Pósthússtræti
Skráning fer fram í tölvupósti:
Lindyravers@gmail.com
Greiðsla berist á:
513 - 14 - 607990 kt: 4805081220

Facebook event

Framhalds Lindy Hop námskeið með Eika og Hakan

Mánudagur, Júlí 11th, 2011 | Fr | Engar athugasemdir

Helgina 6.-7. Ágúst ætla þeir félagar, Eiríkur Guðmundsson og Hakan Durak að hita upp fyrir The Arctic Lindy Exchange með því að kenna Lindy Hop framhalds námskeið.

Til að taka þátt í námskeiðinu þurfa nemendur að hafa lokið einni önn af byrjendanámskeiðum eða sambærilegt.

Dagskrá:
Laugardagurinn 6. Ágúst
15:00-16:15 - Kennsla
16:30 - 18:00 - Kennsla

Sunnudagurinn 7. Ágúst
15:00-16:15 - Kennsla
16:30 - 18:00 - Kennsla

Námskeiðið kostar 4500 kr ef greitt er fyrir 4. Ágúst en 5000kr ef borgað er seinna eða með peningum á staðnum.

—————– Um Kennarana ——————
Eiríkur Guðmundsson byrjaði að dansa Lindy Hop með Lindy Ravers áður en hann hóf að kenna hjá Háskóladansinum. Í Janúar 2011 laggði hann heim undir fót og fór til Þýskalands í atvinnumennskuna og er nú í fullu starfi við kennslu á Lindy Hop og Blues dansi.

Hakan Durak, oft nefndur faðir Lindy Hop á Íslandi, er ábyrgur fyrir því að koma af stað Lindy Hop menningu Íslands. Ásamt því að kenna Lindy hop í dansskóla sínum í Tyrklandi skipuleggur hann The Arctic Lindy Exchange - Íslensku Lindy Hop Hátíðina og einu Farand-Lindy Hátíð heims.

Facebook event

Workshop með heimsklassa kennurum

Sunnudagur, Mars 20th, 2011 | Fr | Engar athugasemdir

Haldið verður workshop með Patrick Szmid og Natasha Ouimet helgina 15. til 17. apríl 2011

Patrick og Natasha búa og kenna Lindy Hop í Montreal, Kanada, en einnig ferðast þau um heiminn og kenna á minni og stærri workshopum.

Workshopið er ætlað fyrir miðstigs og framhalds lindy hop dansara og geta allir sem hafa áhuga skráð sig og tekið þátt. Skráning er á lindyravers@gmail.com - frekari upplýsingar er hægt að nálgast Hér.

Vorönn Lindy Ravers 2011

Fimmtudagur, Janúar 20th, 2011 | Fr | Engar athugasemdir

Lindy Hop tímar verða á Þriðjudögum kl 20-22 í Hinu Húsinu, á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. Þessir tímar verða opnir öllum félagsmönnum Lindy Ravers sem hafa einhverja reynslu af dansinum.

Einnig verða opnir tímar á föstudagskvöldum frá kl 20-22 í Hinu Húsinu þar sem við getum komið saman og æft saman það sem við viljum þá stundina.

Félagsmenn teljast þeir sem greitt hafa árgjaldið. Árgjaldið eru litlar 2000 kr og fá þeir sem eru félagsmenn aðganga að tímunum sem og afslátt á viðburði sem félagið stendur fyrir. Reinkningsnúmer Lindy Ravers er: 513 - 14 - 607990
kt: 4805081220

Breytingar hafa orðið á dagskránni hjá Lindy Ravers á komandi önn, ekki verður boðið uppá byrjendanámskeið að svo stöddu.

Einnig munum við bjóða uppá workshop með Patric Szmidt og Natasha Ouimet í apríl en það verður auglýst betur seinna.

Leita

January 2012
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
3031